haustmot_go_ans_002Gunnar Björnsson sigraði á hraðkvöldi Hugins sem lauk í kvöld. Gunnar vann alla andstæðinga sína sjö að tölu og flesta þeirra af nokkru öryggi enda má segja að forseti Si sé vaxandi bæði í starfi sem og við skákborðið. Það voru heilir tveir vinningar í næstu menn en það Vigfús Ó. Vigfússon og Örn Leó Jóhannsson nýbakaður unglingameistari Íslands sem báðir fengu 5v. Vigfús var hins vegar með stigi meira og hlaut annað sætið og Örn Leó það þriðja. Í lokin dró Gunnar í happdrættinu og þrátt fyrir að hafa orð á þeim möguleika að draga Stefán þá kom upp númer Freyju Birkisdóttur og völdu þau bæði pizzu frá Dominos. Næsta hraðkvöld verður svo mánudaginn 7. desember.

 

Lokastaðan á hraðkvöldinu:

Röð Nafn Vinn. TB1 TB2 TB3
1 Gunnar Björnsson 7 21 0 7
2 Vigfús Vigfússon 5 12 0 5
3 Örn Leó Jóhannsson 5 11 0 5
4 Sigurður Freyr Jónatansson 4 8 0 4
5 Stefán Bergsson 4 7 0 4
6 Hörður Jónasson 2 1 0 2
7 Freyja Birkisdóttir 0.5 0.25 0.5 0
8 Pétur Jóhannesson 0.5 0.25 0.5 0