28.4.2008 kl. 11:02
Héraðsmót HSÞ í skák 16 ára og yngri.
Héraðsmót HSÞ í skák fyrir 16 ára og yngri verður haldið á Húsavík fimmtudaginn 1 maí nk.
Keppni hefst kl 13:30 og lýkur um kl 16:00 (áætluð mótslok)
Mótið fer fram í Borgahólsskóla.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum :
Strákar 13-16 ára (7-10 bekkur.) Börn fædd 1995 eða fyrr
Stelpur 13-16 ára —————————————————
Strákar 9-12 ára (3-6 bekkur.) Börn fædd 1996 til 1999
Stelpur 9-12 ára —————————————————
Strákar 8 ára og yngri (1- 2 bekkur) Börn fædd 2000 og síðar
Stelpur 8 ára og yngri ——————————————–
Keppnisgjald aðeins 200 krónur á keppanda.
Tefldar verða 6 eða 7 umferðir eftir monradkerfi. (Eftir fjölda keppenda)
Allir keppendur tefla í einum hóp, því það einfaldar keppnisfyrirkomulagið.
Umhugsunartími verður 10 mín á keppanda í hverri skák.
Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu í hverjum flokki auk þess sem að vinninga hæsti keppandinn fær veglegan farandbikar afhentan.
Þegar mót þetta var haldið í fyrra kepptu 33 krakkar á öllum aldri.
Það er skákfélagið Goðinn sem sér um keppnishaldið.
Keppendur úr Norður-Þingeyjarsýslu er sérstaklega boðnir velkomnir til keppni eftir sameiningu HSÞ og UNÞ.
Skráning í mótið er hafin í síma 4643187 eða 8213187 (Hermann)
Æskilegt er að keppendur skrái sig til keppni í síðasta lagi miðvikudagskvöldið 30. apríl.
Allar nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalsteinsson formaður skákfélagsins Goðans
Sími 4643187 / 8213187 E-mail lyngbrekka@magnavik.is
