Miðvikudaginn 7. desember verður héraðsmót HSÞ í skák fyrir 16 ára og yngri, haldið í Seiglu – miðstöð sköpunar (áður Litlulaugaskóla) í Reykjadal. Mótið hefst kl 16:00 og tefldar verða 4-5 umferðir eftir monrad-kerfi og verður umhugsunartíminn 10 mín á keppanda í hverri skák. Umferðafjöldinn ræðst þó af endanlegri þátttöku, en 16 keppendur tóku þátt í mótinu 2015.

HSÞ

Sérstök verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í þremur aldursflokkum og sigurvergarinn í hverjum flokki fær nafnbótina héraðsmeistari HSÞ í skák 2016.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum.

8 ára og yngri (1-3 bekkur)      (Ingþór Ketilsson verð héraðsmeistari HSÞ 2015)
9-12 ára (4-7 bekkur)               (Ari Ingólfsson varð héraðsmeistari HSÞ 2015)
13-15 ára (8-10 bekkur)           (Kristján Davíð Björnsson varð héraðsmeistari 2015)

Skráning í mótið fer fram hjá Hermanni í síma 4643187, 8213187 eða með tölvupósti á netfangið: Lyngbrekku@simnet.is. Ókeypis verður í mótið.

Athugið að mjög æskilegt að að keppendur skrái sig fyrirfram til leiks