8.5.2014 kl. 10:52
Hermann æfingameistari GM-Hellis á norðursvæði
Hermann Aðalsteinsson varð skákæfingameistari GM-Hellis á norðursvæði sl. mánudagskvöld þegar lokaskákæfing vetrarins fór fram á Húsavík. Hermann fékk alls 79 samanlagða vinninga á mánudagsæfingum í vetur. Tómas Veigar varð efstur á þessari lokaæfingu með 6,5 vinninga af 7 mögulegum, Smári Sigurðsson varð annar með 5,5 og Hermann, Sigurbjörn og Ævar komu næstir með 4 vinninga. Hlynur Snær Viðarsson fékk 2 og þeir Jón A Hermannsson og Heimir Bessason kræktu í 1 vinning hvor. Tímamörk voru 10 mín á mann.
Hlynur Snær Viðarsson, Hermann Aðalsteinsson og Smári Sigurðsson.
Lokastaðan eftir veturinn.
Hermann 79
Hlynur 71
Smári 69,5
Sigurbjörn 67,5
Ævar 62,5
Heimir 22
Viðar 16,5
Tómas 16,5
Ármann 14
Jón Aðalsteinn 13
Sighvatur 10,5
Jakub P 8,5
Stefán Bogi 3
Eyþór Kári 2
Ingólfur V 2
Ásmundur S 1