Hermann Aðalsteinsson varð skákæfingameistari GM-Hellis á norðursvæði sl. mánudagskvöld þegar lokaskákæfing vetrarins fór fram á Húsavík. Hermann fékk alls 79 samanlagða vinninga á mánudagsæfingum í vetur.
Tómas Veigar varð efstur á þessari lokaæfingu með 6,5 vinninga af 7 mögulegum, Smári Sigurðsson varð annar með 5,5 og Hermann, Sigurbjörn og Ævar komu næstir með 4 vinninga. Hlynur Snær Viðarsson fékk 2 og þeir Jón A Hermannsson og Heimir Bessason kræktu í 1 vinning hvor. Tímamörk voru 10 mín á mann.
Hermann 79
Hlynur 71
Smári 69,5
Sigurbjörn 67,5
Ævar 62,5
Heimir 22
Viðar 16,5
Tómas 16,5
Ármann 14
Jón Aðalsteinn 13
Sighvatur 10,5
Jakub P 8,5
Stefán Bogi 3
Eyþór Kári 2
Ingólfur V 2