Hermann efstur á janúaræfingamótinu.

Hermann Aðalsteinsson er efstur á janúaræfingamót Goðans þegar eitt skákkvöld er eftir. Hermann hefur fengið 6 vinninga eftir 8 skákir og á aðeins einn skák ólokið gegn Sigurbirni.

Ævar Ákason kemur næstur með 5 vinninga en Ævar á tveimur skákum ólókið. Smári og Júlíus koma næstir með 4 vinninga hvor. Smári á eftir 3 skákir og Júlíus tvær. Smári, Ævar og Júlíus geta því náð Hermanni að vinningum.

Í kvöld verða einhverjar frestaðar skákir tefldar þegar opna húsinu lýkur á íslenska skákdeginum.