Hjörvar Steinn Grétarsson sigraði á þéttu og vel skipuðu Atskákmóti Reykjavíkur sem sem fram fór á mánudagskvöldið með 5,5v í sex skákum. Hjörvar gerði jafntefli viðJóhann Ingvason í fjórðu umferð, sigraði svo Einar Hjalta Jensson í úrslitaskák mótsins í fimmtu umferð og sigldi svo sigrinum í höfn með því að vinna Dag Ragnarsson í lokaumferðinni. Hjörvar er félagsmaður í Huginn og varð því einnig Atskákmeistari Hugins á suðursvæði og fé því báða titlana sem í boði voru. Einar Hjalti sem sigraði á mótinu í fyrra hafnaði í öðru sæti með 5v. Fjórir skákmenn komu næstir með 4v en það voru Stefán Bergsson, Dagur Ragnarsson, Jon Olav Fivelstad og Kristján Halldórsson og var Stefán þeirra fremstur á stigum.
Lokastaðan á Atskákmóti Reykjavíkur:
Röð | Nafn | Vinn. | TB1 | TB2 | TB3 |
1 | Hjörvar Steinn Grétarsson | 5,5 | 22 | 14 | 20 |
2 | Einar Hjalti Jensson | 5 | 24 | 16 | 19 |
3 | Stefán Bergsson | 4 | 24 | 16 | 15 |
4 | Dagur Ragnarsson | 4 | 21 | 14 | 10 |
5 | Jon Olav Fivelstad | 4 | 20 | 14 | 11 |
6 | Kristján Halldórsson | 4 | 19 | 12 | 10 |
7 | Örn Leó Jóhannsson | 3,5 | 19 | 12 | 9,5 |
8 | Loftur Baldvinsson | 3,5 | 17 | 11 | 8,5 |
9 | Jóhann Ingvason | 3 | 23 | 16 | 9,5 |
10 | Vigfús Vigfússon | 3 | 21 | 15 | 7 |
11 | Gunnar Björnsson | 3 | 19 | 12 | 6,5 |
12 | Elsa María Krístínardóttir | 3 | 18 | 12 | 7 |
13 | Felix Steinþórsson | 3 | 18 | 12 | 6 |
14 | Kristófer Ómarsson | 3 | 15 | 10 | 4 |
15 | Sigurður F. Jónatansson | 2,5 | 16 | 10 | 4,5 |
16 | Óskar Long Einarsson | 2,5 | 11 | 7,5 | 3,5 |
17 | Páll Þórsson | 2 | 17 | 12 | 4,5 |
18 | Halldór Pálsson | 2 | 16 | 12 | 2 |
19 | Stefan Orri Davíðsson | 2 | 15 | 10 | 2 |
20 | Hörður Jónasson | 1,5 | 15 | 10 | 2,5 |
21 | Björgvin Kristbergsson | 1 | 14 | 9 | 0,5 |