Hlynur Snær Viðarsson varð efstur á skákæfingu sem fram fór á Húsavík sl. mánudagskvöld. Hlynur gerði sér lítið fyrir og vann alla sína andstæðinga. Tefldar voru skákir með 10 mín umhugunartíma.
Lokastaðan:
- Hlynur Snær Viðarsson 6 af 6
- Smári Sigurðsson 5
- Hermann Aðalsteinsson 4
- Heimir Bessason 2,5
- Sigurbjörn Ásmundsson 2
- Sighvatur Karlsson 1
- Jón A Hermannsson 0
Næsta skákæfing fer fram mánudaginn 2. nóvember