Ný kennimerki Hugins

 

Hraðkvöld Hugins verður mánudaginn 19. mars nk. og hefst taflið kl. 20:00. Tefldar verða 7-10 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 3 sekúndur eða 5 mínútur + 3 sekúndur á hvern leik. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni.

Sigurvegarinn á hraðkvöldinu fær í verðlaun máltíð fyrir einn á Saffran eða pizzu frá Dominos Einnig verður dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fær sama val. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu.

Þátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).