Ný kennimerki Hugins
Hraðkvöld Hugins í Mjóddinni verður mánudaginn 30. janúar nk. og hefst taflið kl. 20:00. Tefldar verða 7-10 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á hvern leik eða 5 mínútur + 2 sekúndur á hvern leik eftir fjölda umferða. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Hraðkvöldið verður reiknað til hraðskákstiga. Í vetur verða svo hraðkvöldin fyrsta og síðasta mánudag í hverjum mánuði að því undanskildu þegar mánudag ber upp á stórhátíð eða aðrir viðburðir eru til staðar..
Sigurvegarinn á hraðkvöldinu fær í verðlaun máltíð fyrir einn á Saffran eða pizzu frá Dominos Einnig verður dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fær sama val. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Í tilefni af skákdeginum 26. janúar þá verður skákbókin Við skákborðið í aldarfjórðung, 50 valdar sóknarskákir með Friðriki Ólafssyni í verðlaun fyrir sigurvegara mótsins og að auki annað eintak dregið út. Þó ekki sá sami og er dreginn í hinu happdrættinu.
Þátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).
