Jón Hálfdánarson og Friðrik Ólafsson mættust síðast árið 1969
Halldór Grétar Einarsson vann Kristján Eðvarðsson í vel útfærðri skák

Þriðja umferð Nóa-Síríus mótsins var tefld í Stúkunni á þriðjudagskvöld 24. janúar.

Í upphafi umferðar kvaddi Pálmi Ragnar Pétursson sér hljóðs fyrir hönd mótsstjórnar og bauð Friðrik Ólafsson sérstaklega velkominn til leiks. Pálmi sagði að Friðrik hefði verið með flensu í upphafi móts, en væri nú mættur og það væri fagnaðarefni. Það væri vissulega mikill heiður að því að hafa Friðrik meðal keppenda og til gamans mætti geta þess, fyrst teflt væri í þessu mannvirki, að þegar Friðrik var að gera garðinn frægan á 6. og 7. áratug síðustu aldar, þá gátu Íslendingar ekki státað af fótbolta- og handboltaliðum á heimsmælikvarða eins og nú væri. Friðrik greip þá inn í og sagði „að eftir 14-2 ósigurinn gegn Dönum, hefði verið sagt um Íslendinga að það sem þeir hefðu ekki í fótunum hefðu þeir í höfðinu!“.

Í tíð Friðriks voru þeir fáir landar vorir sem kepptu meðal þeirra bestu og voru sameiningartákn Íslendinga. Friðrik Ólafsson var sannarlega slíkt tákn. Þegar Friðrik tefldi, fylgdist íslenska þjóðin með. Í tilefni þess að Friðrik verður 82 ára á skákdaginn, 26. janúar, bað Pálmi skákmenn að rísa úr sætum og klappa honum lof í lófa.

 

Jón Hálfdánarson og Friðrik Ólafsson mættust síðast árið 1969

 

Að því búnu gaf Vigfús Vigfússon skákstjóri skákmönnum merki um að setja klukkurnar af stað. Friðrik settist til tafls á móti Jóni Hálfdánarsyni. Alveg eins og í gamla daga en þeir mættust síðast við taflborðið árið 1969. Hvað er hálf öld á milli vina.

Það fór vel á með þeim kempum eins og meðfylgjandi mynd sýnir og rétt eins og fyrir tæpum 50 árum, gerðu þeir félagar jafntefli.

Til gamans má benda á frábæran vef Skáksögufélagsins og vefsíðu til heiðurs Friðriki, fyrsta stórmeistara okkar Íslendinga. Á þessari síðu, má sjá umfjöllun um Skákþing Íslands 1969, þegar Friðrik og Jón mættust síðast: http://skaksogufelagid.is/1969-skakthing-islands/. Friðrik fór með sigur af hólmi á þessu móti með 9 vinninga í 11 skákum. Leyfði 4 jafntefli, þar af gegn Jóni Hálfdánarsyni. Áhugasamir geta rakið skákina sem er að finna neðarlega á síðunni.

 

Af A-flokki.

Dagur Ragnarsson og Guðmundur Kjartansson

Á efsta borði gerðu Dagur Ragnarsson og Guðmundur Kjartansson jafntefli eftir langa baráttuskák sem stóð fram á nótt. Skák Jóhanns Hjartarsonar og Andra Áss Grétarssonar var frestað. Björgvin Jónsson gerði jafntefli við Helga Áss Grétarsson í vel tefldri skák þar sem sá síðarnefndi var nær sigri.

Þröstur vann Sigurð Daða með svörtu í æsispennandi skák þar sem Sigurður Daði tefldi hvasst og fórnaði liði fyrir kóngssókn en Þröstur stóð af sér ágjöfina og landaði að lokum sigrinum. Björn Þorfinnsson sigraði Örn Leó nokkuð örugglega eftir að hafa unnið skiptamun snemma tafls.

Lenka Ptachnikova lá fyrir Magnúsi Erni Úlfarssyni og Mikael Jóhann Karlsson náði jafntefli gegn Fidemeistaranum og formanninum Þorsteini Þorsteinssyni eftir að sá síðarnefndi hafði verið með vinningsmöguleika. Þá gerðu TR-ingarnir Jón Viktor Gunnarsson og Benedikt Jónasson jafntefli í langri og flókinni skák þar sem Benedikt hafði að lokum hrók og tvö peð gegn hrók og riddara.

Benedikt Jónasson og Jón Viktor Gunnarsson

Nafnarnir og Vestfirðingarnir Guðmundur Halldórsson og Guðmundur Gíslason sigruðu báðir, Halldórsson lagði Ingvar Þór Jóhannesson nokkuð óvænt og Gíslason sigraði Baldur A. Kristinsson nokkuð örugglega. Þá gerði þriðji Vestfirðingurinn,

Halldór Grétar Einarsson, sér lítið fyrir og vann Kristján Eðvarðsson í vel útfærðri skák.

Björn Hólm Birkisson náði að hanga á jafntefli gegn Sigurbirni Björnssyni þar sem sigurlíkurnar voru greinilega hjá þeim síðarnefnda.

 

Upplýsingar um önnur úrslit umferðarinnar má finna hér: http://chess-results.com/tnr257789.aspx?lan=1&art=2&rd=3&wi=821

 

Staðan í A-flokki er þessi:

Efstir og jafnir með tvo og hálfan vinning að loknum þremur umferðum eru: Guðmundur Kjartansson (2468), Daði Ómarsson (2197), Björn Þorfinnsson (2404), Dagur Ragnarsson (2276), Þröstur Þórhallsson (2414), Magnús Örn Úlfarsson (2375).

Tvo vinninga hafa Helgi Áss Grétarsson (2448), Vignir Vatnar Stefánsson (2404), Benedikt Jónasson (2208), Björgvin Jónasson (2340), Guðmundur Halldórsson (2204), Halldór Grétar Einarsson (2242), Bárður Örn Birkisson (2175), Guðmundur Stefán Gíslason (2332).

Jóhann Hjartarson og Andri Áss eiga skák til góða en þeir eru báðir með einn og hálfan eftir tvær.

 

B-flokkur:

Agnar Tómas Möller og Róbert Luu

Í B-flokki vakti það mesta athygli, að hin unga og bráðefnilega skákkona Svava Þorsteinsdóttir, gerði jafntefli við stigahæsta mann flokksins, Jón Trausta Harðarson.

Þá náði Róbert Luu jafntefli við Agnar Tómas Möller. Á öðrum borðum var einnig hart barist og hafði Birkir Karl Sigurðsson betur gegn Stephan Briem og Hörður Anton Hauksson vann sigur á Hrund Hauksdóttur. Óskar Víkingur Davíðsson og Ólafur Evert Úlfsson gerðu jafntefli.

 

Hvað önnur úrslit varðar, er vísað til meðfylgjandi krækju.

 

Staðan í B-flokki:

Efstir og jafnir með fullt hús eftir þrjár umferðir eru Birkir Karl Sigurðsson og Hörður Aron Hauksson.

Á eftir þeim, með tvo vinninga, koma 14 skákmenn: Óskar Víkingur Davíðsson, Róbert Luu, Stephan Briem, Agnar Tómar Möller, Hrund Hauksdóttir, Stefán Orri Davíðsson, Svava Þorsteinsdóttir, Ólafur Evert Úlfsson, Benedikt Briem, Jón Eggert Hallsson, Gunnar Erik Guðmundsson, Jón Trausti Harðarson, Alexander Oliver Mai og Arnar Milutin Heiðarsson.

 

Fjórða umferð verður tefld þriðjudaginn 31. janúar og eru allir velkomnir í Stúkuna við Kópavogsvöll.

 


Myndaalbúm þriðju umferðar: