Í kvöld, miðvikudag, fer fram stórleikur í 16 liða úrslitum þegar Vinaskákfélagið mætir Taflfélagi Bolungavíkur.
Teflt er í VIN, Hverfisgötu 47 kl. 19:30 og eru áhorfendur velkomnir!
Dómari verður IA Don Roberto
Föstudaginn 28. ágúst fer svo fram viðureign Hugins b og Taflfélags Garðabæjar. Teflt verður í betrunarhúsinu kl. 19:30.