Smári Sigurðsson
Laugardagskvöldið 12. desember kl 20:00 fer fram okkar árlega hraðskákmót. Mótið fer fram í Seiglu (áður Litlulaugaskóli) í Reykjadal. Tefldar verða skákir með 5 mín umhugsunartíma á mann og allir við alla. Mótið verður reiknað til atskákstiga hjá FIDE.

Keppt verður í einum flokki en verðlaun veitt í fullorðinsflokki og U-16 ára til þriggja efstu í hvorum flokki.
Þátttökugjald er krónur 500 á alla keppendur.
Smári Sigurðsson vann mótið í fyrra, en hann hefur oftast allra unnið þetta mót í gegnum tíðina.
Vonast er eftir góðri þátttöku í mótinu og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig til leiks með því að svara þessum pósti eða hringja í Hermann í síma 4643187 eða 8213187.
