Hraðskákmót Hugins í Mjóddinni hefur verið frestað til fimmtudagsins 21. ágúst nk. vegna viðureigna í Hraðskákkeppni taflfélaga. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a og hefst taflið kl. 20. Stefnt er að því að reikna mótið til hraðskákstiga. Heildarverðlaun á mótinu eru kr. 20.000. Tefldar verða 7 umferðir 2*5 mínútur. Núverandi hraðskákmeistari Hellis er Hjörvar Steinn Grétarsson. Þetta er í nítjánda sinn sem mótið fer fram. Björn Þorfinnsson og Davíð Ólafsson hafa hampað titlinum oftast eða fjórum sinnum.
Verðlaun skiptast svo:
- 10.000 kr.
- 6.000 kr.
- 4.000 kr.
Þátttökugjöld eru kr. 400 fyrir félagsmenn en kr. 600 fyrir aðra. Fyrir unglinga í Huginn eru þau kr. 300 en kr. 400 fyrir aðra.