17.12.2012 kl. 21:23
Íslandsmótið í hraðskák – Friðriksmótið
Íslandsmótið í hraðskák – Friðriksmótið fór fram í höfuðstöðvum Landsbanka Íslands í gær. Goðinn-Mátar áttu 4 keppendur á mótinu og náði Einar Hjalti Jensson bestum árangri þeirra. Einar fékk 7,5 vinninga í 11 skákum. Þröstur Þórhallsson varð í 14 sæti með 7 vinninga. Helgi Áss Grétarsson varð í 20. sæti með 6,5 vinninga og Tómas Björnsson varð í 31. sæti með 6 vinninga.
Alls tók 80 keppendur þátt í mótinu.
Röð efstu manna:
- 1. AM Bragi Þorfinnsson (2484) 8,5 v.
- 2. AM Hjörvar Steinn Grétarsson (2516) 8,5 v.
- 3. AM Jón Viktor Gunnarsson (2413) 8,5 v.
- 4.-8. SM Jóhann Hjartarson (2592), AM Björn Þorfinnsson (2386), SM Hannes Hlífar Stefánsson (2512), SM Helgi Ólafsson (2547) og AM Arnar Gunnarsson (2440) 8 v.
- 9.-12. SM Henrik Danielsen (2507), SM Stefán Kristjánsson (2486), SM Jón L. Árnason (2498) og FM Einar Hjalti Jensson (2284) 7,5 v.
- Heildarúrslit má finna á Chess-Results.
- Sjá nánar hér
