6.1.2012 kl. 16:34
Íslenski skákdagurinn 26 janúar.
– til
heiðurs Friðriki Ólafssyni –
Skáksamband
Íslands, Skákakademia Reykjavíkur og Skákfélagið Goðinn kynna Íslenska skákdaginn.
Íslenski
skákdagurinn verður haldinn um allt land 26. janúar – á afmælisdegi fyrsta
stórmeistara Íslendinga, Friðriks Ólafssonar.
Á Íslenska
skákdeginum verður teflt um allt Ísland, til sjávar og sveita. Taflfélög,
skákklúbbar, grunnskólar, fyrirtæki og fleiri sameinast um að það verði teflt
sem víðast á Íslandi og sem flestir landsmenn á öllum aldri setjist að tafli.
Er
það von og vilji forvígismanna skákhreyfingarinnar að þeir fjölmörgu og
kraftmiklu aðilar sem standa að skákstarfi í landinu haldi einhvern
skemmtilegan skákviðburð þennan
merkisdag.
Skákfélagið
Goðinn í Þingeyjarsýslu verður með opið hús af þessu tilefni í félagsaðstöðu
sinni í Framsýnarsalnum Garðarsbraut 26 á Húsavík kl 20:30 þann 26. janúar nk.
Þangað verður Þingeyingum boðið að koma og kynna sér starfsemi skákfélagins
Goðans. Gestum verður boðið að tefla við skákmenn Goðans, horfa á myndasýningu
af félagsstarfi Goðans og þiggja veitingar í boði Goðans.
Skákfélagið Goðinn.
