Jakob í víking til Tékklands og Þýskalands

Jakob Sævar Sigurðsson tekur þátt í tveimur skákmótum erlendis í sumar. Hann er skráður til leiks á Teplice Open 2013  sem fram fer í Tékklandi daganna 15-23 júní. Eitthvað á annað hundrað keppendur eru nú þegar skráir til leiks á því móti og þar á meðal Sigurður Eiríksson SA og Lenka Ptacnikova 

Jakob Sævar Sigurðsson

 

Jakob skellir sér svo yfir til Þýskalands og tekur þátt í Arber Open  sem hefst 29 júní og stendur til 7. júlí. Sigurður Eiríksson verður einnig með á því móti.

Sagt verður frá gengi Jakobs hér á síðunni í sumar.