Jólapakkaskákmót Hugins verður haldið laugardaginn 19. desember nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur. Mótið hefst kl. 13 og er ókeypis á mótið. Mótið er fyrir börn og unglinga og fer nú fram í 18. skipti en það var fyrst haldið fyrir jólin 1996. Síðan hefur það verið haldið nánast á hverju ári og hefur alltaf verið eitt fjölmennasta skákmót ársins.
Keppt verður í allt að 6 flokkum:
- Flokki fæddra 2000-2002
- Flokki fæddra 2003-2004
- Flokki fæddra 2005-2006
- Flokki fæddra 2007-2008
- Flokki fæddra 2009 síðar
- Peðaskák fyrir þau yngstu.
Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann.
Jólapakkar eru í verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bæði drengi og stúlkur. Auk þess verður happdrætti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig.
[dt_button size=“big“ animation=“none“ icon=““ icon_align=“left“ color=““ link=“http://skakhuginn.is/jolapakkamot-hugins-2015-skraning-og-skradir-keppendur/“ target_blank=“true“]Skráning og skráðir keppendur[/dt_button]
