Jón Aðalsteinn Hermannsson, Kristján Davíð Björnsson og Viktor Hjartarson unnu sigur hver í sínum aldursflokki á héraðsmóti HSÞ í skák 2014 fyrir 16 ára og yngri sem fram fór á Laugum sl. þriðjudag. Aðeins tveir keppendur mættu til leiks í flokki 8 ára og yngri og tefldu þeir því með keppendum í flokki 9-12 ára. Viktor og Sváfnir Ragnarsson náðu báðir að vinna eina skák, en Viktor Hjartarson vann tiltilinn þar sem hann vann skákina við Sváfni. Kristján Davíð Björnsson hafði mikla yfirburði í flokki 9-12 ára og vann allar sínar skákir. Tímamörk voru 7 mín á mann.

Viktor Hjartarson og Sváfnir Ragnarsson ásamt Hermanni skákstjóra
Viktor Hjartarson og Sváfnir Ragnarsson ásamt Hermanni skákstjóra
2010-09-04 22.01.05
Keppendur í flokki 9-12 ára. Kristján Davíð lengst til vinstri

 

Lokastaðan í flokki 8 ára og yngri og 9-12 ára.

1. Kristján Davíð Björnsson         7 vinninga af 7 mögulegum
2. Ari Ingólfsson                                  5
3. Stefán Bogi Aðalsteinsson      4,5
4. Björn Gunnar Jónsson              4
5. Hilmar Örn Sævarsson             3,5
6. Magnús Máni Sigurgeirsson  2
7. Viktor Hjartarson                         1
8. Sváfnir Ragnarsson                       1

Keppni í flokki 13-15 ára var mjög jöfn og hörð og þegar upp var staðið voru þrír keppendur efstir og jafnir með fjóra vinninga, eftir tvöfalda umferð. Var því ákveðið að þessir þrír efstu tefldu aftur daginn eftir tvöfallt einvígi um titilinn, en með 7. mín umhugsunartíma í stað 10 mín og gerði Jón Aðalsteinn Hermannsson sér lítið fyrir og vann allar skákirnar fjórar og héraðsmeistaratitilinn í flokknum um leið. Eyþór og Jakub fegnu báðir einn vinning og háðu því hraðskákeinvígi um annað sætið, Aftur komu þeir jafnir í mark með einn vinning hvor. Þá tefldu þeir svokallaða “armageddon-skák” þar sem hvítur var með 5 mín en svartur 4 mínútur en svörtum dugði jafntefli til sigurs. Það fór svo að Jakub sem stýrði hvítu mönnunum vann sigur og þar með annað sætið. Eyþór hafnaði því í þriðja sæti.

Eyþór Kári Ingólfsson, Jón Aðalsteinn Hermannsson og Jakub Piotr Statkeiwicz
Eyþór Kári Ingólfsson, Jón Aðalsteinn Hermannsson og Jakub Piotr Statkeiwicz