Kristján Ingi Smárason og Benedikt Þór Jóhannsson urðu efstur og jafnir með tvo vinninga af þremur mögulegum á æfingu sem fram fór á Húsavík í gærkvöld. Viðar Njáll Hákonarson og Hermann Aðalsteinsson komu næsti með einn vinning hvor. Aðeins fjórir mættu á æfinguna. Nokkrir voru veikir, sumir að vinna og aðrir ekki á svæðinu.

Tímamörk voru 15 mín á mann. Næsta æfing verður á Tornleo nk. mánudagskvöld 28 október.

Æfinga og mótaáætlun Goðans

Hér er hægt að skoða fyrirhugaða dagskrá Goðans fram til áramóta.