Lög Goðans og fundargerðir.

                                                      
                             1. gr
Heiti félagsins er skákfélagið Goðinn-Mátar.                                        
                             2. gr
Heimili félagsins er heima hjá formanni á hverjum tíma.                                        
                             3. gr
Höfuðstöðvar Goðans-Máta eru í Þingeyjarsýslu. Aðalstarfssvæði félagsins er Þingeyjarsýsla og nágrenni en hluti starfseminnar fer fram á höfuðborgarsvæðinu. Öllum er heimilt að ganga
í félagið óháð búsetu, sem uppfylla skilyrði 8. greinar                                      
                                       
                             4. gr
Tilgangur félagsins er að auka þekkingu og áhuga á skák á félagssvæðinu.                                       
                             5. gr
Félagið skal vera í Skáksambandi Íslands.                                       
                             6. gr
Félagið skal halda úti heimasíðu, þar sem Lög þessi og félagatal eru aðgengileg fyrir félagsmenn.                                        
                             7. gr
Stjórn skal, að svo miklu leiti sem unnt er, sjá um að haldin séu skákmót og skákæfingar sem séu öllum félagsmönnum heimill aðgangur að. Stjórn velur skákstjóra er sjái um framkvæmd mótanna og hún skal einnig sjá til þess að reglum FIDE og skáksambands Íslands sé framfylgt. Stjórn félagsins skal sjá til þess að skákmót sem félagið heldur uppfylli skilyrði er gilda um skákstig og séu send inn til útreiknings á Íslensku skákstigum og eftir atvikum, alþjóðlegum skákstigum                                        
                              8. gr
Rétt til inngöngu í félagið hafa allir einstaklingar, sem stjórn félagsins samþykkir, sem ekki eru skráðir í önnur íslensk skákfélög , nema þeim sem hefur verið vísað úr félaginu,  eða er meinuð innganga í félagið samkvæmt ákvörðun stjórnar eða félagsfundar.                                         
                              9. gr
Á félagsfundum, ma. aðalfundum, hafa allir skuldlausir félagmenn, 16 ára og eldri, sem eru ekki fullgildir félagar í öðrum skákfélögum innan Skáksambands Íslands, atkvæðisrétt, enda hafa þeir verið í félaginu amk. næstu þrjá mánuði fyrir fund.. þeir sem kosnir eru í stjórn félagsins fá þó þegar atkvæðisrétt.                                       
                               10. gr
Aðalfund félagsins skal halda í janúar eða febrúar ár hvert og hefur hann úrskurðarvald í öllum málum þess. Á aðalfundi skal kosin stjórn og þar skulu lagðir fram reikningar til samþykktar. Þar skulu teknar ákvarðanir um taflstaði, tafltíma, fundartíma og félagsgjöld. Þar skulu og teknar ákvarðanir í öðrum málum er varða félagið og félagsmenn almennt. Á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum, samanber þó 15 og 16 grein.Til fundarins skal boðað með amk. 10 daga fyrirvara. Í fundarboði skal tilgreina lagabreytingatillögur ef einhverjar eru. Heimillt er að boða fundinn með tölvupósti og/eða í síma.Á aðalfundi skal fjalla um eftirfarnandi liði:       
       -Kosinn fundarstjóri og ritari
       -flutt skýrsla stjórnar
      – flutt reikningar (almanksár)
      – kosning í stjórn
      – kosning á einum varamanni í stjórn
     
      – Formleg inntaka nýrra félagsmanna     
      – lagabreytingatillögur sem séu löglega boðaðar
       -Önnur mál
                                        
                                  11. gr
Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum og tveimur til vara. Stjórn
skiptir með sér verkum þannig að hún kýs úr hópi sínum, formann, ritara, gjaldkera
og tvo meðstjórnendur. Kjörtímabil stjórnarmanna er tvö ár og skulu þeir þannig
kosnir, að þrír
aðalmenn eru kosnir annað árið og einn varamaður, en tveir aðalmenn og einn varamaður hitt árið. Stjórnin kemur fram fyrir hönd félagsins og
tekur ákvarðanir fyrir hönd þess, séu þær félaginu, markmiðum þess og málefnum í hag. Stjórn ber ábyrgð á gerðum sínum og gerir grein
fyrir þeim á aðalfundi. Innan stjórnar ræður einfaldur meirihluti atkvæða
úrslitum. Falli atkvæði jöfn ræður atkvæði
formanns.                                       
                                       
                                   12. gr
Stjórn, eða eftir atvikum félagsfundi, er heimillt að vísa manni úr félaginu eða meina manni að ganga í félagið ef meirihluti fundarmanna ákveða það.Með sama hætti er heimillt að setja menn í keppnisbann. Stjórn er heimillt að setja menn í keppnisbann til lengri eða skemmri tíma, brjóti viðkomandi lög félagsins eða skáklög skáksambands Íslands. Eins getur stjórn sett menn í æfinga og keppnisbann hjá félaginu ef um ósæmandi framkomu er að ræða hjá viðkomandi, eða skemmdir á eigum félagsins.                                       
                                      13. gr
Allar ályktanir og bindandi ákvarðanir stjórnar og félagsfundar skulu færðar í fundargerðabók.                                       
                                       14. gr
Formaður skal sjá til þess að halda utan um félagatal félagsins og skrá inn nýja félagsmenn jafnóðum og þeir ganga í félagið, að fengnu samþykki stjórnar. Þeir félagsmenn sem hafa ekki mætt á æfingu og/eða skákmót í 3 ár samfleytt, verða felldir út af félagaskrá. Mæti viðkomandi síðar fer hann sjálfkrafa inn á félagaskrá aftur.                                            
                                      15. gr
Ákvörðun um að leggja félagið niður er ekki hægt að taka nema á aðalfundi og með samþykki 2/3 hluta fundarmanna.Verði félagið lagt niður skal eigum þess, ef einhverjar eru, ráðstafað samkvæmt vilja meirihluta fundarmanna.                                        
                                       16. gr
Lögum þessum er einugis hægt að breyta á aðalfundi með 2/3 hluta atkvæða, enda hafi breytingatillögur verið tilgreindar í fundarboði.                                       
                                        17. gr

Að öðru leiti gilda skáklög Skáksambands Íslands í þeim tilfellum sem ekki er um getið hér.


Lög þessi voru samþykkt á félagsfundi 2 september 2009.
Orðalagsbreyting á 10. gr var samþykkt á aðalfundi 6. febrúar 2012.
Breyting á 1. grein 3. grein og 11 grein voru samþykktar á aðalfundi í febrúar 2013
 

  

(Eldri lög félagsins falla hér með úr gildi)