Meistaramót Hugins (suðursvæði) 2016 hefst miðvikudaginn 31. ágúst klukkan 19:30. Mótið er 7 umferða opið kappskákmót sem lýkur 19. september. Leyft verður að taka 2 yfirsetur í 1.-5. umferð sem tilkynna þarf um fyrir lok næstu umferðar á undan. Vegleg og fjölbreytt verðlaun eru í boði. Umhugsunartíminn verður 1½ klst. á skákina auk hálfrar mínútu á hvern leik.

Mótið er öllum opið og er reiknað til alþjóðlegra og íslenskra skákstiga. Skráning í mótið er á skak.is en einnig er hægt að skrá sig með því að hringja í skákstjóra s-866-0116 (Vigfús).

Skákdagar eru mánudagar, miðvikudagar og fimmtudagar en aldrei eru meira en tvær umferðir í viku. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni.

Aðalverðlaun:

50.000
40.000
30.000

Aukaverðlaun (miðað er við alþjóðleg skákstig)

  • Skákmeistari Hugins (suðursvæði): Kr. 10.000.
  • Besti árangur undir  2000 skákstigum:  Skákbók hjá skákbóksölunni að verðmæti kr. 5.000.
  • Besti árangur undir 1800 skákstigum:  Skákbók hjá skákbóksölunni að verðmæti kr. 5.000.
  • Besti árangur undir 1600 skákstigum: Skákbók hjá skákbóksölunni að verðmæti kr. 5.000.
  • Besti árangur stigalausra: Skákbók hjá skákbóksölunni að verðmæti kr. 5.000.
  • Unglingaverðlaun (15 ára og yngri), skákbækur hjá skákbóksölunni að verðmæti: 1.vl. kr. 5.000, 2. og 3.vl. kr. 4000.

Þátttökugjöld:

Félagsmenn kr. 3.500; aðrir 4.500-
Unglingar 15 ára og yngri: Félagsmenn: 2.000; Aðrir 3.000.
Allir titilhafar fá frítt í mótið

Umferðartafla:

  • 1. umferð, miðvikudaginn, 31. ágúst, kl. 19:30
  • 2. umferð, fimmtudaginn, 1. september, kl. 19:30
  • 3. umferð, mánudaginn, 5. september, kl. 19:30
  • 4. umferð, miðvikudaginn, 7. september, kl. 19:30
  • 5. umferð, mánudaginn, 12. september, kl. 19:30
  • 6. umferð, fimmtudaginn, 15. september, kl. 19:30
  • 7. umferð, mánudaginn, 19. september, kl. 19:30

Skráðir keppendur