Mjóddarmótið fer fram laugardaginn 14. júní í göngugötunni í Mjódd.  Mótið hefst kl. 14 og er mótið öllum opið. Góð verðlaun í boði.  Á síðasta ári sigraði Gámaþjónustan ehf en fyrir þá tefldi Daði Ómarsson.  Tefldar verða sjö umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma.  Skráning fer fram í síma 866-0116 og á heimasíðu Hugins Þátttaka er ókeypis!

Mjóddarmótið var fyrst haldið 1999 og hét þá Kosningamót Hellis og fór fram á kjördegi. Á fyrsta mótinu sigraði Hannes Hlífar Stefánsson sem tefldi fyrir Símvirkjann. Mótið fékk fljótlega nafnið Mjóddarmót Hellis enda ekki hægt að halda kosningamót á hverju ári og ekki var mögulegt að halda mótið á kjördegi eftir Taflfélagið Hellir flutti í núverandi húsnæði. Núna tekur Skákfélagið Huginn við mótinu eftir sameiningu félaganna Goðans-Máta og Hellis undir nafni Hugins.

Verðlaun eru sem hér segir:

  • 1. 15.000
  • 2. 10.000
  • 3.   5.000

Skráning: