Mörg óvænt úrslit í 2. umferð Nóa Síríus mótsins

Baráttuandi, fingurbrjótar og snilldartilþrif settu svip sinn á 2. umferð Nóa Síríus mótsins sem fór fram í gær í hinum aðlaðandi vistarverum á Kópavogsvelli. Keppendur skerptu einbeitinguna og leikgleðina með ljúfmeti frá Nóa Síríusi og óvænt úrslit létu ekki á sér standa. Þannig sigraði Þröstur Árnason (2267) alþjóðlega meistarann Karl Þorsteins (2452), hinn glaðbeitti formaður Skákdeildar Breiðabliks, Halldór Grétar Einarsson (2190),  knésetti Sigurð Daða Sigfússon (2328) og Dagur Ragnarsson (2073) gerði sér lítið fyrir og lagði Davíð R. Ólafsson (2316) eftir miklar kúvendingar. Síðast en ekki síst vakti athygli að hinn bráðefnilegi Kristófer Ómarsson(1756) náði að leggja kappann unga Nökkva Sverrisson  (2081) að velli.   

IMG 9675b

Sigurður  P. Steindórsson (2240) og Þröstur Þórhallssson, stórmeistari, (2445) skildu jafnir og stórmeistari kvenna, Lenka Ptácníková (2245), hélt upp á afmæli sitt með skiptum hlut við alþjóðlega meistarann Jón Viktor Gunnarsson (2412). Fleiri konur voru í essinu sínu þetta kvöld því að þrefaldur Norðurlandameistari kvenna,  Guðlaug Þorsteinsdóttir (2052), sigraði Hafnfirðinginn geðþekka FM Benedikt Jónasson (2256) og háskólastúdínan Hallgerður Þorsteinsdóttir (1955) sneri á söngvarann og sjentilmanninn Sæberg Sigurðsson (2153).

Birkir Karl Sigurðsson (1742), hélt jöfnu við Hrannar Arnarson (2111) og prófessor Snorri Þór Sigurðsson (1808) beitti vísindalegri sundurgreiningu til að halda skiptum hlut gegn Sverri Erni Björnssyni (2010). Vignir Vatnar Stefánsson (1800) tók hraustlega á móti Magnúsi Pálma Örnólfssyni (2161) og skildu þeir jafnir. Kristján Halldórsson (1811) mætti grjótharður til leiks og gerði jafnt við Arnald Loftsson (2107). Sama varð uppi á teningnum í skák Páls Andrasonar (1767) og Olivers Arons  Jóhannessonar (2105) og í viðureign Andra Steins Hilmarssonar  (1631) við víkingakappann hrikalega Gunnar Frey Rúnarsson (2058) sem mun vera sterkasti skákmaður heims, pund fyrir pund. 

Bæta mannbroddar árangur?

Aðvara þurfti keppendur fyrir umferðina vegna mikillar hálku á bílaplaninu við leikvanginn og voru þeir hvattir til þess að setja mannbrodda undir skóna. Sú öryggiskennd sem mannbroddar veita virðist hafa yfirfærslugildi fyrir taflmenskuna því að enginn þeirra keppenda sem væddust mannbroddum tapaði skák þetta kvöld! Fiskisagan flýgur og hafa margir á orði það þeir komi á mannbroddum í næstu umferð hvort sem hált verður eða færðin sem á sumardegi. Vert er að benda þeim, sem veigra sér við að setja mannbrodda undir blankskó, á að einnig má mannbroddavæða bomsur, stigvél, strigaskó, flókaskó og klossa svo að eitthvað sé nefnt – og jafnvel sauðskinnsskó eins og Hermann, formaður GM Hellis og fjárbóndi, vill sérstaklega minna á.

Stálin stinn í 3. umferð

Þriðja umferð  Nóa Siríus mótsins fer fram fimmtudaginn 23. janúar. Þá leiða m.a. saman hesta sína Stefán Kristjánsson og Davíð Kjartansson, Guðmundur Gíslason og Bragi Þorfinnsson, Dagur Arngrímsson og Þröstur Árnason og Björgin Jónsson og Halldór Grétar Einarsson en allir þessir skákmenn hafa fullt hús eftir tvær fyrstu umferðirnar.