Óskar Víkingur – pistill frá EM

Óskar Víkingur Davíðsson fór ásamt sjö öðrum keppendum á Evrópumótið í skák í október síðastliðnum. Hann hefur teflt með taflfélaginu Helli frá því að hann hóf taflmennsku fyrir tveimur árum, og teflir nú undir merkjum sameinaðs félags, GM Hellis.

Óskar Víkingur var yngsti keppandinn sem keppti fyrir Íslands hönd en hann tefldi í opnum flokki undir 8 ára. Einstakar skákir og niðurstöður allra flokka má finna á heimasíðu mótsins: http://budva2013.org, en Óskar bloggaði einnig á meðan á mótinu stóð á síðunni: http://oskarvikingur.blogspot.com/

****

Við ferðuðumst til Svartfjallalands með flugi í gegnum London til Dubrovnik í Króatíu. Síðan fórum við með rútu til Budva í Svartfjallalandi, sem er lítill strandbær við Adríahaf. Við vorum átta keppendur, en hópurinn var 17 manns í heildina, og þar af voru þjálfararnir okkar tveir, Hjörvar Steinn og Helgi
skákstaður
Ólafsson. Við komum á hótelið okkar um klukkan hálf eitt um nóttu. Svo fórum við að tefla daginn eftir. Eldri hóparnir kepptu í íþróttahúsi, en við Vignir kepptum í barnaskóla og byrjuðum okkar umferðir klukkan fjögur. Aðstæður á skákstað voru ekki góðar, klósettin voru ömurleg og það var rosa þröngt. Áhorfendur máttu ekki koma inn í skáksal hjá okkur, ekki einu sinni þjálfarar. Í íþróttahúsinu voru áhorfendapallar, en þar voru líka fullt af þjálfarum og foreldrum að reyna að svindla, og gefa keppendum merki, svo að það er kannski bara eins gott að hafa alla úti. Hjá okkur var heldur engin aðstaða til að bíða úti, svo að mamma mín og pabbi hans Vignis þurftu að bíða úti á malbikuðu plani, en stundum var komið myrkur þegar við vorum búnir með skákirnar.

 

Óskar og Vignir
Hótelið var hins vegar mjög fínt, það voru góðar sundlaugar og stutt að labba niður á strönd. Reyndar var ekkert internet í herberginu okkar, en við komumst oft á netið í móttökunni á hótelinu. Maturinn var alveg fínn stundum en ekki alltaf. Svo var rosa rigning suma dagana, en það var bara allt í lagi.

 

Í fyrstu umferðinni mætti ég strák frá Austurríki og vann hann. Það var gott að vinna fyrstu umferðina svo að maður fái sjálfstraust. Svo vann ég líka umferð númer tvö, en þá keppti ég við strák frá Georgíu. Í þriðju umferð var ég eiginlega með unnið, tapaði því niður í jafntefli og svo var ég ekki sáttur við það og reyndi að vinna og gerði mistök sem að endaði með því að ég tapaði skákinni. Ég hefði átt að fara í jafntefli og var með smá móral eftir skákina í marga daga á eftir. Svo tapaði ég á móti frekar lélegum strák frá Þýskalandi í fjórðu umferð og ágætum Búlgara í fimmtu umferð. Í sjöttu umferð náði ég jafntefli á móti Austurríkismanni og var mjög sáttur við það því ég eiginlega byrjaði á að tapa manni. Svo keppti ég við tvo Rússa í röð, vann annan auðveldlega og tapaði fyrir hinum, og endaði á að vinna léttan Ísraela. Þannig að ég endaði með 4,5 vinninga úr 9 umferðum, sem er helmings vinningshlutfall. Ég var ekkert rosa sáttur við það því að ég veit að ég get gert betur, en þetta var líka bara ágætt svona á fyrsta stórmótinu mínu í útlöndum.

Óskar
Mörg löndin senda bara einn eða tvo keppendur í yngsta flokknum, og hin norðurlöndin, England og Írland sendu t.d. enga í yngstu flokkunum. Ég held að það sé dálítið sniðugt að byrja í undir 8 ára því að þá fær maður keppnisreynslu, sérstaklega fyrir okkur Íslendinga því að það er dýrt fyrir okkur að fara á alþjóðleg mót svo að við höfum stundum ekki eins mikla keppnisreynslu og hinir sem að búa í miðri Evrópu. Þannig að það er frábært að fara í stærri hóp saman og fá að keppa við þessa sterkustu á okkar aldri. Mér fannst hinir keppendurnir í mínum flokki alveg ágætir, eiginlega betri en ég hélt að þeir væru. Þeir tefldu líka aðeins öðruvísi en ég var vanur, stundum var ég búinn að skoða þá en þeir notuðu margar ólíkar opnanir og komu á óvart. Svo er dálítið erfitt að undirbúa sig undir skákir því að margir eru ekki komnir með skákstig og maður finnur ekki gamlar skákir með þeim.

Um mitt mótið var heill frídagur. Við nýttum hann í að slappa af og við Verónika og Mikki fórum líka í bátsferð. Við sigldum einmitt framhjá Sveti Stefan þar sem annað einvígi Fischer og Spassky fór fram akkúrat fyrir 21 ári síðan. Úrslitin voru þau að Bobby vann með tíu vinninga, fimm töp og 15 jafntefli.  Síðan var Bobby Fischer eftirlýstur af Bandaríkjunum fyrir að brjóta verslunarbann við Júgóslavíu og að lokum endaði þessi mikli skákkappi á Íslandi. Því miður missti ég af því að hitta hann því hann dó árið 2008 og þá var ég bara þriggja ára.

Kastali2
 

Sumir keppendanna eru að þjálfa rosalega mikið, eru í sérstökum skákskólum og margir eru með sérþjálfara með sér. Tyrkirnir verða kannski sterkir á næstu árum, en austantjaldsþjóðirnar röðuðu sér í efstu sætin, strákur frá Aserbaijan sigraði og annar þaðan var í þriðja sæti. Svo var rosa sterkur Rússi í öðru sæti, Hvítrússi í fjórða og Tyrki í því fimmta. Þessir þrír efstu á Evrópumótinu röðuðu sér líka í sæti 2-4 á heimsmeistaramótinu sem er nú nýbúið, en þá kom Indverji inn í fyrsta sæti. Þessir gaurar eru með um 1800 skákstig. Þessir bestu eru svo komnir upp í 1900-2000 elo stig í undir 10 ára flokki og með 2200 í undir 12 ára flokki. Þannig að það má ekkert slaka á til að missa ekki af öllu.  Rússarnir voru  með fimmtán keppendur bara í flokknum mínum, undir 8 ára, sem er næstum tvöfaldur sá fjöldi sem við Íslendingar sendum til að keppa í öllum flokkum! Þeir senda líka sterkustu 7 ára gaurana, til að æfa þá svo að þeir geti unnið flokkinn þegar þeir eru ári eldri.

 Ég lærði alveg fullt af mótinu, það var mjög góð reynsla að fá tækifæri til að keppa á svona stóru móti og ég segi takk fyrir við alla þá sem styrktu mig fyrir ferðina og líka við þjálfarana, sem kenndu mér mikið, bæði á mótinu og fyrir það. Svo var ég líka búinn að læra mikið áður af hinum þjálfurunum mínum, þeim Vigfúsi, Birni Ívari og Davíð Ólafs svo að ég segi líka takk við þá! Hinir keppendurnir í landsliðinu voru líka frábærir, allir stóðu saman og voru svo hvetjandi og það var frábært að vera hluti af íslenska ungmennalandsliðinu í skák.