28.8.2012 kl. 10:04
Öruggur sigur Goðans á SA (uppfært)
Goðinn lagði Skákfélag Akureyrar í 2. umferð Hraðskákkeppni taflfélaga í gærkvöld. Akureyringar börðust hetjulega en Goðar neyttu aflsmunar og því fór sem fór. Lokatölur urðu 47-25 Goðum í vil sem höfðu betur í 9 umferðum af tólf en þremur lauk með jafntefli.
Hæsta vinningshlutfall Goða hafði Helgi Áss 83%, Ásgeir 70% og Hlíðar 67%. Sprækastur Akureyringa var Halldór Brynjar með 75% vinningshlutfall, Mikael Jóhann hafði 43% og öðlingurinn Jón Þ. Þór 38%.
Árangur Goða
• Helgi Áss Grétarsson 10,0 v./12
• Ásgeir P. Ásbjörnsson 7,0 v./10
• Hlíðar Þór Hreinsson 8,0 v./12
• Sigurður Daði Sigfússon 7,0 v./11
• Tómas Björnsson 4,5 v./7
• Kristján Eðvarðsson 6,5 v./12
• Einar Hjalti Jensson 4,0 v./8
Árangur Akureyringa
• Halldór Brynjar Halldórsson 9,0 v./12
• Mikael Jóhann Karlsson 3,0 v./7
• Jón Þ. Þór 4,5 v./12
• Stefán Bergsson 4,0 v./12
• Gylfi Þórhallsson 3,5 v./12
• Þór Valtýsson 1,0 v./6
• Óskar Long 0,0 v./11
Teflt var í húsakynnum Skáksambands Íslands og eru forvígismönnum SÍ þökkuð afnotin af aðstöðunni. Goðar þakka meðbræðrum sínum að norðan drengilega viðureign og óska þeim velfarnaðar á hvítum reitum og svörtum.