Óskar Víkingur Davíðsson sigraði í eldri flokki á Huginsæfingu sem haldin var 4. maí sl. Óskar fékk 4v i 5 skákum og það var Stefán Orri bróðir hans sem lagði Óskar að velli. Annar varð Dawid Kolka með 3,5v. Næstir komu svo Heimir Páll Ragnarsson, Alec Elías Sigurðarson og Atli Mar Baldurson með 3v en Heimir Páll var þeirra hæstur á stigum og og hlaut þriðja sætið.
Í yngri flokki var Alexander Már Bjarnþórsson efsur með fullt hús 5v í jafn mörgum skákum. Annar var Ísak Orri Karlsson með 4v. Síðan komu þrír skákmenn jafnir að vinningum og stigum og unnu einnig hvorn annan á vísl. Það voru Adam Omarsson, Baltasar Máni Wedholm og Óttar Örn Bergmann. Því var gripið til hlutkestis í annað sinn á þessum æfingum í vetur og eins og síðast þá var Adam dreginn út og hlut hann þriðja sætið.
Í æfingunni tóku þátt: Óskar Víkingur Davíðsson, Dawid Kolka, Heimir Páll Ragnarsson, Alec Elías Sigurðarson, Atli Mar Baldursson, Stefán Orri Davíðsson, Gabríel Sær Bjarnþórsson, Sindri Snær Kristófersson, Jökull Davíðsson, Jón Þorbjörn Sveinbjörnsson, Alexander Már Bjarnþórsson, Ísak Orri Karlssson, Adam Omarsson, Baltasar Máni Wedholm Gunnarsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon og Sesar Máni Sindrason.
Næsta æfing verður mánudaginn 11. maí og hefst kl. 17.15. Æfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengið er inn milli Subway og Fröken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.
