Sigurður Freyr Jónatansson
Sigurður Freyr Jónatansson

Sigurður Freyr Jónatansson sigraði með 8v af 10 mögulegum á hraðkvöldi Hugins í Mjóddinni sem haldið var 4. maí sl. Annar varð Vigfús Ó. Vigfússon með 7,5v og þriðji varð Sindri Guðjónsson með 6v. Það hefur svo hent mig sem ekki hefur komið fyrir áður að ég hef alveg gleymt því hver var dreginn út en a.m.k. naut Saffran einhverra vinsælda hjá verðlaunahöfum kvöldsins í þettta sinn.  Næsta hraðkvöld verður mánudaginn 1. júní.

Lokastaðan á hraðkvöldinu:

  1. Sigurður Freyr Jónatansson  8v/10
  2. Vigfús Ó. Vigfússon 7,5
  3. Sindri Guðjónsson 6v
  4. Stefán Orri Davíðsson 3,5v
  5. Gunnar Friðrik ingibergsson 3v
  6. Björvin Kristbergsson 2v