Óskar Víkingur Davíðsson og Dawid Kolka voru efstir og janir með 5,5v af sex mögulegum í eldri flokki á æfingu sem haldin var 27. apríl sl. Óskar var hærri á stigum og varð því í 1. sæti og Dawid í öðru. Þriðji var svo Alec Elías Sigurðarson með 4,5v.
Í yngri flokki var Gabriel Sær Bjarnþórsson efstur með 5v. eftir góðan endasprett. Síðan komu fjórir skákmenn með 4v en það voru Alexander Már Bjarnþórsson, Baltasar Máni Wedholm, Ísak Orri Karlsson og Adam Omarsson með 4v. Eftir mikinn stigaútreikning og með því að taka tillit til innbyrðis viðureigna tókst loksins að skera úr um að Alexander var í öðru sæti og Baltasar í því þriðja.
Á æfingunni var lagt sama dæmið fyrir í eldri og yngri flokki. Krökkunum gekk vel að glíma við dæmið og fengu flest einn eða hálfan vinning fyrir.
Í æfingunni tóku þátt: Óskar Víkingur Davíðsson, Dawid Kolka, Alec Elías Sigurðarson, Heimir Páll Ragnarsson, Atli Mar Baldursson, Jökull Davíðsson, Jón Þorbjörn Sveinbjörnsson, Sindri Snær Kristófersson, Gabríel Sær Bjarnþórsson, Alexander Már Bjarnþórsson, Baltasar Máni Wedholm Gunnarsson, Ísak Orri Karlssson, Adam Omarsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Sesar Máni Sindrason.
Næsta æfing verður mánudaginn 4. maí og hefst kl. 17.15. Æfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengið er inn milli Subway og Fröken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.
