13.3.2008 kl. 11:38
Pétur efstur á æfingu.
Pétur Gíslason varð efstur á skákæfingu Goðans sem fram fór á Fosshóli í gærkvöldi. Hann fékk 4,5 vinninga af 5 mögulegum. Aðeins Ármann Olgeirsson náði jafntefli við Pétur. Úrslit urðu eftirafandi :
Pétur Gíslason 4,5 / 5
Ármann Olgeirsson 4
Baldvin Þ Jóhannesson 3,5
Ketill Tryggvason 2
Sigurbjörn Ásmundsson 1
Hermann Aðalsteinsson 0
Tefldar voru skákir með 15 mín umhugsunartíma á mann. Miðvikudagskvöldið 19 mars verður aðalfundur skákfélagsins Goðans haldinn á Fosshóli kl 20:30 H.A.
