21.1.2009 kl. 23:34
Pétur efstur á æfingu.
Pétur Gíslason varð efstur á skákæfingu kvöldsins með 5,5 vinninga af 6 mögulegum, en teflt var í Litlulaugaskóla. Tefldar voru skákir með 10 mín umhugsunartíma á mann. Úrslit urðu eftirfarandi:
1. Pétur Gíslason 5,5 vinn af 6 mögul.
2. Rúnar Ísleifsson 5
3-4. Baldur Daníelsson 3
3-4. Baldvin Þ Jóhannesson 3
5. Ármann Olgeirsson 2,5
6. Hermann Aðalsteinsson 2
7. Sigurbjörn Ásmundsson 0
Næsta skákæfing verður á Húsavík að viku liðinni. H.A.
