Rayan Sharifa sigraði örugglega með fullu hús 5v af fimm mögulegum á æfingu sem haldin var 7. maí sl. Annar var Einar Dagur Brynjarsson með 4v og þriðji var Brynjólfur Yan Brynjólfsson með 3,5v og í fyrsta sinn í verðlaunasæti þegar æfingin er ekki skipt í flokka. Á þessari æfingu fengust sem sagt alveg hrein úrslit og enginn stigaútreikningur.  Ekkert dæmi var lagt fyrir á æfingunni en þemaskák var í tveimur umferðum og haldið var áfram með c3 afbrigðið í sikileyjarvörn þegar svartur svarar með 2….Rf6. Núna var komið að kafla 19 í bókinni.

Í æfingunni tóku þátt: Rayan Sharifa, Einar Dagur Brynjarsson, Brynjólfur Yan Brynjólfsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Ívar Örn Lúðvíksson, Frank Gerritsen, Viktor Már Guðmundsson, Garðar Már Einarsson, Árni Benediktsson,  Bergþóra Helga Gunnarsdóttir, Elfar Ingi Þorsteinsson, Sigurður Rúnar Gunnarsson, Kiril Alexander Igorsson og Gabríela Veitonite.

Lokaæfing á vormisseri verður næsta mánudag 14. mai 2017 og hefst kl. 17.15. Þá verða veittar viðurkenningar fyrir veturinn og um miðja æfinguna verður pizzuveisla. Æfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengið er inn milli Subway og Lyfjavals og salurinn er á þriðju hæð.