Á æfingu 16. apríl sl. sigraði Rayan Sharifa með fullu húsi 6v af sex mögulegum. Í öðru sæti var Óttar Örn
Bergmann Sigfússon með 5v. Næstir komu jafnir Árni Benediktsson og Brynjólfur Yan Brynjólfsson með 4v en Árni var hærri á stigum og hlaut þriðja sætið en Brynjólfur varð fjórið.

Óttar Örn Bergmann Sigfússon sigraði á æfingu sem haldin var 23. apríl sl. með 5,5v af sex mögulegum. Jafnteflið kom í lokaumferðinn gegn Rayan þar sem gæfan var afar hliðholl Óttari á lokametrunum. Sðan komu jafnir með 4,5v Viktor Már Guðmundsson, Frank Gerritsen og Rayan Sharifa allir með 4,5v. Af þeim var Viktor stigahæstur með 18 stig og hlaut annað sætið. Frank og Rayan voru jafnir með 13,5 stig í fyrsta útreikningi og báðir með 14 stig í öðrum útreikningi. Þeir tefldu ekki saman á æfingunni og því ekki hægt að skilja þar á milli. Tími æfingarinnar var liðinn svo gripið var til hlutkestis og þar hafði Frank betur með fiskinn á sínu bandi.

Í þessum æfingum tóku þátt: Rayan Sharifa, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Árni Benediktsson, Brynjólfur Yan Brynjólfsson, Einar Dagur Brynjarsson, Garðar Már Einarsson, Kiril Alexander Igorsson, Viktor Már Guðmundsson, Frank Gerritsen, Ívar Örn Lúðvíksson og Elfar Ingi Þorsteinsson.

Næsta æfing verður mánudaginn 30. apríl 2018 og hefst kl. 17.15. Æfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengið er inn milli Subway og Lyfjaval í Mjódd og salurinn er á þriðju hæð.