Rúnar Ísleifsson varð efstur á skákæfingu sem fram fór sl. mánudagskvöld á Laugum. Rúnar vann allar sínar skákir sex að tölu.
Vegna slæmrar veðurspár var mæting dræm og var því tefld tvöföld umferð, sú fyrri með 15 mín umhugsunartíma en sú einni með 5 mín umhugsunartíma.
1. Rúnar Ísleifsson 6 af 6
2. Sigurbjörn Ásmundsson 3
3. Hermann Aðalsteinsson 2
4. Jón Aðalsteinn Hermannsson 1
Síðasta skákfæfing á þessu ári verður nk. mánudagskvöld á Húsavík.