18.2.2011 kl. 10:08
Skákþing Goðans 2011 hefst í kvöld.
Skákþing Goðans 2011 hefst í kvöld kl 20:00 í sal Framsýnar-stéttarfélags að Garðarsbraut 26 á Húsavík. Mótið er öllum opið.
Tefldar verða 7 umferðir eftir monrad-kerfi, 4 atskákir og 3 kappskákir.
Mótið verður reiknað til Íslenskra og fideskákstiga.
Dagskrá:
Föstudagur 18 febrúar kl 20:00 1-4 umferð. (atskák 25 mín )
Laugardagur 19 febrúar kl 10:00 5. umferð. (90 mín +30 sek á leik)
Laugardagur 19 febrúar kl 15:00 6. umferð. ——————-
Sunnudagur 20 febrúar kl 10:00 7. umferð. ——————-
Verðlaun verða með hefðbundnu sniði. 3 efstu í fullorðins flokki og 3 efstu í 16 ára og yngri.
Farandbikar fyrir sigurvegarann.
Þátttökugjald er 2000 krónur fyrir fullorna og 1000 krónur fyrir 16 ára og yngri.
Skráning í mótið fer fram í sérstökum dálki hér til vinstri.
Einnig er hægt að skrá sig til leiks í síma 464 3187 eða 821 3187
Alls hafa 11 þegar skráð sig til leiks en tekið er við skráningum til kl 19:55 í kvöld.
Listi yfir skráða keppendur:
Pétur Gíslason 1795
Jakob Sævar Sigurðsson 1740
Smári Sigurðsson 1660
Heimir Bessason 1520
Ævar Ákason 1510
Hermann Aðalsteinsson 1450
Sighvatur Karlsson 1325
Snorri Hallgrímsson 1305
Sigurbjörn Ásmundsson 1200
Valur Heiðar Einarsson 1170
Hlynur Snær Viðarsson 1055
