Skákþing Goðans 2012.

Skákþing Goðans 2012 verður haldið helgina 17-19 febrúar nk. í sal Framsýnar-stéttarfélags* að Garðarsbraut 26 á Húsavík. Mótið er öllum opið.

go_amerki_100_rautt_1133365.jpg
Tefldar verða 7 umferðir eftir swissneska-kerfinu,(swiss-manager) 4 atskákir og 3 kappskákir.
Mótið verður reiknað til Íslenskra og fideskákstiga.                                 

Dagskrá:
Föstudagur   17 febrúar  kl 20:00  1-4 umferð.   (atskák 25 mín )
Laugardagur 18 febrúar  kl 11:00  5. umferð.     (90 mín +30 sek á leik)
Laugardagur 18 febrúar  kl 19:30  6. umferð.       ——————-
Sunnudagur  19 febrúar  kl 11:00  7. umferð.       ——————-


*Það skal tekið fram að 1-4 umferð, atskákirnar sem verða tefldar á föstudagskvöldinu, verða tefld í Bjarnahúsi, sem er safnaðarheimili Húsavíkurkirkju og er staðsett í næsta húsi sunnan við Húsavíkurkirkju.

Verðlaun verða með hefðbundnu sniði. 3 efstu í fullorðins flokki og 3 efstu í 16 ára og yngri.
Farandbikar fyrir sigurvegarann í báðum flokkum.
 
Þátttökugjald er 2000 krónur fyrir fullorna og 1000 krónur fyrir 16 ára og yngri. 

Mótið á chess-results:
http://www.chess-results.com/tnr65329.aspx?ix=1&lan=1&turdet=YES

Skráning í mótið fer fram hjá formanni í síma 464 3187 eða 821 3187

Skákmeistarar Goðans frá upphafi:

2004    Baldur Daníelsson.
2005    Ármann Olgeirsson
2006    Ármann Olgeirsson       
2007    Smári Sigurðsson         
2008    Smári Sigurðsson 
2009    Benedikt Þorri Sigurjónsson
2010    Rúnar Ísleifsson
2011    Jakob Sævar Sigurðsson