17.4.2013 kl. 21:16
Skákþing Norðlendinga 2013 – opinn flokkur
Skákþing Norðlendinga verður haldið á Sauðárkróki helgina 19 – 21. apríl
n.k. Mótið verður með hefðbundnum hætti, telfdar verða 4 umf. atskák með 25
mín. umhugsunartíma á föstudagskvöldi. Tvær umferðir kappskák 90 mín + 30
sec á leik á laugardegi og ein um ferð með sama sniði á sunnudegi. Að
þeirri umferð lokinni verður Hraðskákmót Norðlendinga haldið. Veitt verða
verðlaun fyrir þrjú efstu sæti í mótinu. Auk verðlauna í stigaflokkum.
Allir sem taka þátt í mótinu geta unnið til peningaverðlauna, en aðeins
þeir sem eru með lögheimili á Norðurlandi geta unnið titilinn Skákmeistari
Norðlendinga og Hraðskákmeistari Norðlendinga.
Mótsgjald er aðeins 2000 krónur og er innifalið í því kaffi og meðlæti á
stundum (þegar vel liggur á mótshaldara)
Skráning og frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Skákfélags Sauðárkróks
www.skakkrokur.blog.is Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið
unnar.ingvarsson@gmail.com Þar er einnig hægt að fá frekari upplýsingar um
gistimöguleika á Sauðárkróki.
