10.11.2007 kl. 20:55
Smári 15 mín meistari Goðans 2007.
Smári Sigurðsson sigraði á nóvembermóti Goðans sem haldið var á Fosshóli í Þingeyjarsveit í dag. Hann fékk 8 vinninga af 9 mögulegum. Hann er því 15 mín meistari Goðans 2007. Tefldar voru skákir með 15 mín umhugsunartíma á mann. Rúnar Ísleifsson varð í öðru sæti ásamt Sigurði Arnarssyni (S.A.) með 7,5 vinninga og Jakob Sævar Sigurðsson varð þriðji með 6 vinninga. Alls tóku 10 keppendur þátt í mótinu. Benedikt Jóhannsson sigraði í flokki 16 ára og yngri með 1,5 vinning, en Benedikt sem er mjög efnilegur,afrekaði það að ná jafntefli við Smára í fyrstu umferð. Úrslit urðu eftirfarandi :
1. Smári Sigurðsson 8 af 9 mögul. gull auk peningaverðlauna
2. Rúnar Ísleifsson 7,5 silfur auk peningaverðaluna
3. Sigurður Arnarsson 7,5 peningaverðlaun
4. Jakob Sævar Sigurðsson 6 brons
5. Hermann Aðalsteinsson 4
6. Sigurbjörn Ásmundsson 4
7. Ármann Olgeirsson 3,5
8. Sighvatur Karlsson 2
9. Benedikt Þ Jóhannsson 1,5 gull
10. Jóhann Gunnarsson 1
Smári og Rúnar töpuðu ekki skák í mótinu og gerðu jafntefli sín á milli. Mótið var félagsmót hjá Goðanum og því fékk Sigurður ekki bronsverðlaun.
Með sigri í móti þessu bætti Smári fjórða félagstitlinum við sig og eru allir farandbikarar félagsins (4 að tölu) í hans umsjá. Næsta mót félagsins er hraðskákmót Goðans og verður það haldið í desember.