Smári Sigurðsson Mynd Hallfríður Sigurðardóttir

Smári Sigurðsson varð efstur á skákæfingu sem fram fór á Húsavík sl. mánudagskvöld. Smári fékk 3,5 vinninga af 4 mögulegum. Hermann Aðalsteinsson kom næstur með 3 vinninga og Kristján Ingi Smárason fékk 2 vinninga. Tímamörk voru 10 mín og allir tefldu við alla.

Lokastaðan.

Smári Sigurðsson           3,5
Hermann Aðalsteinsson  3
Kristján Ingi Smárason   2
Adam Ferenc Gulyas       1,5
Sigurbjörn Ásmundsson   0

Næsta æfing fer fram á Tornelo nk. mánudagskvöld.