Smári Sigurðsson og Hermann Aðalsteinsson urðu efstir og jafnir með 5,5 vinninga af 7 mögulegum á fyrstu skákæfingu vetrarstarfsins á Húsavík, sem fram fór sl. mánudagskvöld. Smári tapaði einni skák, gegn Rúnari, en Hermann tapaði ekki skák en gerði þrjú jafntefli, þar á meðal við Smára. Rúnar Ísleifsson kom næstur þeim með 5 vinninga og Hlynur Snær Viðarsson fékk fjóra. Aðrir fengu færri vinninga.

Framsýnarhúsið á Húsavík
Framsýnarhúsið á Húsavík

 

 

Átta félagsmenn mættu til leiks og telfld var einföld umferð með 7 mín umhugsunartíma á mann.

 

 

Næsta skákæfing verður næsta mánudagskvöld á Húsavík kl 20:30.