Smári Sigurðsson varð í dag skákmeistari Goðans í fyrsta sinn. Smári fékk 6 vinninga af 7 mögulegum. Tómas Veigar Sigurðarson varð annar með 5 vinninga og Jóhann Sigurðsson þriðji með 4 vinninga. Þorgrímur Daníelsson og Hermann Aðalsteinsson fengu einnig 4 vinninga en voru stiga lægri. Sigurður Eiríksson fékk 6 vinninga en hann keppti sem gestur á mótinu.
14 keppendur tóku þátt í mótinu, sem er nýtt met hjá félaginu. Tímamörk voru 25 mín á mann en mótið fór fram á Fosshóli.
Skákþing Goðans 2007
- Smári Sigurðsson 6 vinn /af 7 mögul.)
- Sigurður Eiríksson 6
- Tómas Veigar Sigurðarson 5
- Jóhann Sigurðsson 4
- Þorgrímur Daníelsson 4
- Hermann Aðalsteinsson 4
- Jakob Sigurðsson 4
- Ármann Olgeirsson 3,5
- Ketill Tryggvason 3,5
- Brandur Þorgrímsson 3
- Heimir Bessason 2,5
- Dagur Þorgrímsson 2,5
- Sigurbjörn Ásmundsson 1
- Ísak Már Aðalsteinsson 0