Stigamót Hellis. Full hús hjá Einari í dag.

Einar Hjalti Jensson vann tvo góða sigra á stigamóti Hellis í dag. Í 5. umferð vann hann Emil Sigurðsson (1699) og í 6. umferð vann Einar, Davíð Kjartansson (2294).
Einar er ásamt Sigurði Daða Sigfússyni efstur á mótinu með 5 vinninga.

Staða efstu manna:

1 FM Sigfusson Sigurdur ISL 2337 5.0 23.5 16.0 19.25
2   Jensson Einar Hjalti ISL 2227 5.0 20.5 14.0 16.50
3 FM Kjartansson David ISL 2294 4.5 22.5 15.0 15.00
4   Sigurdsson Johann Helgi ISL 2071 4.5 20.5 14.0 15.00

 

7. og síðasta umferð verður tefld á morgun. Þá mætir Einar, Sigurði Daða Sigfússyni (2337) með hvítu mönnunum.

Chess-Results