Smári, Tómas og Rúnar

Tómas Veigar Sigurðarson vann sigur á hinu árlega 15. mín skákmóti Hugins á norðursvæði sem fram fór á Húsavík í gær. Tómas fékk sex og hálfan vinning af sjö mögulegum og einungis Smári Sigurðsson náði að halda jöfnu gegn Tómasi. Þetta er annar titill Tómasar í vikunni því hann er nýkrýndur atskákmeistari Akureyrar eftir sigur á atskákmóti Akureyrar um sl. helgi.

Smári, Tómas og Rúnar
Smári, Tómas og Rúnar

Rúnar Ísleifsson varð í öðru sæti með sex vinninga og Smári Sigurðsson varð þriðji með fimm vinninga. Í flokki 16 ára og yngri vann Jón Aðalsteinn Hermannsson sigur með þrjá og hálfan vinning, Jakub Piotr Statkiewicz varð annar með þrjá vinninga og Eyþór Kári Ingólfsson varð þriðji, einnig með þrjá vinninga en stigalægri. Átta keppendur tóku þátt í fullorðinsflokki en sex keppendur í flokki 16 ára og yngri og tefldu allir saman ein einum flokki. Skemmtikvöld Hugins fór svo fram um kvöldið í Dalakofanum á Laugum og verður nánar sagt frá því eftir helgi.

Jakub, Jón og Eyþór
Jakub, Jón og Eyþór

15. mín mót Hugins – Lokastaðan

Rk. SNo Name FED Rtg Club/City Pts.  TB1  TB2  TB3
1 1 Sigurðarson Tómas Veigar ISL 1922 Huginn 6.5 27.0 19.0 24.50
2 4 Ísleifsson Rúnar ISL 1799 Huginn 6.0 28.5 20.0 22.00
3 2 Sigurðsson Smári ISL 1905 Huginn 5.0 30.5 21.0 19.00
4 3 Sigurðsson Jakob Sævar ISL 1806 Huginn 4.5 29.5 21.0 14.50
5 7 Ásmundsson Sigurbjörn ISL 1156 Huginn 4.0 22.5 15.5 8.00
6 5 Aðalsteinsson Hermann ISL 1350 Huginn 3.5 26.0 18.0 8.75
7 10 Hermannsson Jón Aðalsteinn ISL 1047 Huginn 3.5 24.5 17.0 9.75
8 9 Viðarsson Hlynur Snær ISL 1090 Huginn 3.0 30.0 21.5 8.00
9 8 Statkiewicz Jakub Piotr ISL 1102 Huginn 3.0 24.5 17.0 6.00
10 12 Ingólfsson Eyþór Kári ISL 0 Huginn 3.0 18.0 13.5 5.00
11 6 Karlsson Sighvatur ISL 1298 Huginn 2.0 22.5 15.0 4.00
12 11 Ingólfsson Ari ISL 0 Huginn 2.0 21.0 14.0 3.00
13 13 Jónsson Björn Gunnar ISL 0 Huginn 2.0 19.0 14.0 4.50
14 14 Sigurgeirsson Magnús Máni ISL 0 Huginn 1.0 19.5 13.5 2.00

 

Tómas og Smári - Jafntefli
Tómas og Smári – Jafntefli

Mótið á chess-results