Tómas Veigar Sigurðarson varð í kvöld hraðskákmeistari Goðans 2020. Tómas fékk 6 vinninga af 6 mögulegum. Rúnar Ísleifsson og Sigurður Daníelsson urðu jafnir í 2-3 sæti með 5 vinninga. Tefldar voru 7 umferðir me 5+2 tímamörkum.
Mótið fór fram á Tornelo.com vegna covid.
Lokastaðan
Tómas Veigar Sigurðarson 6 vinningar
Rúnar Ísleifsson 5
Sigurður Daníelsson 5
Smári Sigurðsson 4,5
Jakob Sævar Sigurðsson 3,5
Sigurbjörn Ásmundsson 3
Kristján Ingi Smárason 1
Þess má geta að þetta var fyrsta fullorðins-mótið á vegum Skákfélagsins Goðans sem Hermann Aðalsteinsson tekur ekki þátt í frá stofnun Goðans árið 2004.