Á næstu Huginsæfingu mánudaginn 29. febrúar verður forkeppni fyrir Reykjavik Barna-Blitz og gefa tvö efstu sætin þátttökurétt í úrslitum sem fram fara í Hörpu laugardaginn 12. mars samhliða Reykjavíkurskákmótinu. Flokkaskipting á æfingunni mun því miðast við það, þannig að þau sem eru fædd 2003 og síðar og eiga þar með þátttökurétt í barnablitzinu tefla saman í riðli og þau sem eru eldri og þau sem verða búin að vinna sér þáttttökurétt tefla saman í riðli. Æfingin verður reiknuð til hraðskákstiga.
- Staðsetning: Skákfélagið Huginn, Álfabakka 14a, Mjódd
- Tímasetning: Mánudagur 29. febrúar kl. 17.15
- Fjöldi umferða: 7
- Tímamörk: 4 mínútur + 2 sekúndur á leik
- Lokaröð: Stigaútreikningur ræður ef vinningafjöldi er jafn
