21.10.2013 kl. 12:53
Unglingameistaramót GM Hellis, suðursvæði
Unglingameistaramót GM Hellis 2013, suðursvæði hefst mánudaginn 28. október n.k. kl. 16.30 þ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsæfingar. Mótinu verður svo fram haldið þriðjudaginn 29. október n.k. kl. 16.30. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad kerfi. Fyrri keppnisdaginn verða fjórar skákir og þrjár þann seinni. Umhugsunartími á hverja skák er 20 mínútur. Mótið er opið öllum 15 ára og yngri í grunnskóla en titilinn sjálfan getur aðeins félagsmaður í GM Helli unnið. Á meðan á mótinu stendur falla venjulegar barna- og unglingaæfingar niður. Næsta barna- og unglingaæfing eftir unglingameistaramótið verður mánudaginn 4. nóvember n.k. Keppnisstaður er Álfabakki 14a (inngangur við hliðina á Subway) og er salur félagsins á þriðju hæð. Engin þátttökugjöld.
Verðlaunagripir verða fyrir þrjú efstu sætin. Allir þátttakendur fá skákbók.
Umferðatafla:
1.-4. umferð: Mánudaginn 28. október kl. 16.30
5.-7. umferð: Þriðjudaginn 29. október kl. 16.30
Verðlaun:
- 1. Unglingameistari GM Hellis suðursvæði fær farandbikar til varðveislu í eitt ár.
- 2. Þrír efstu fá verðlaunagripi til eignar.
- 3. Allir keppendur fá skákbók.
- 4. Þrír efstu 12 ára og yngri fá verðlaunapening.
- 5. Stúlknameistari GM Hellis suðursvæði fær verðlaunagrip til eignar.
