Útiskákmót Goðans-Máta fer fram á sunnudag í Kiðagili

Hið árlega útiskákmót Goðans-Máta verður haldið í Kiðagili í Bárardal sunnudaginn 30 júní og hefst það kl 14:00. Áætluð mótslok erum um kl 15:00. Teflt verður á stéttinni fyrir framan Kiðagil. Líklegur umhugsunartími verður 5-10 mín á skák og fer umferðafjöldi eftir fjölda þátttakenda. Mótið er ókeypis og engin verðlaun verða í boði, bara gamanið.

Að móti loknu geta keppendur brugðið sér inn í Kiðagil því fyrsta kaffihlaðborð sumarsins verður þennan sama dag i Kiðagili.

Ekki þarf að skrá sig til keppni fyrirfram, en áhugasamir geta þó látið formann vita af þátttöku sinni með því að senda póst á lyngbrekku@simnet.is eða hringja í síma 8213187 fyrir kl 14:00 á sunndag.