Kristján Ingi Smárason héraðsmeistari HSÞ 2026
Vetrarstarf skákfélagins Goðans hófst með skákæfingu og félagsfundi í gærkvöldi 31. ágúst í Túni á Húsavík. Kristján Ingi Smárason kemur vel undan sumri þar sem hann vann allar sínar skákir í gærkvöld fjórar að tölu. Smári Sigurðsson fékk 3 vinninga og Hilmar Freyr Birgisson, Saier Martin og Sigurbjörn Ásmundsson fengu 1 vinning hver. Tímamörk voru 10 mín og einföld umferð var tefld.
Kl 21:00 hófst síðan árlegur félagsfundur þar sem rædd voru verkefni vetrarins en óvenju mikið er framundan á næstu mánuðum. Deildó, Skákþing Goðans, Sel Hótel Mývant/Mývatn Öl eru stærstu mótin sem framundan eru og mikil undirbúingsvinna er fyrirséð. Ákveðið var á fundinum að vera með skákæfingar annað hvert mánudagskvöld fram til áramóta nema eitthvað breytist sem gefur tilefni til annars.
Ný skákstig 1. sept.
Etfir því sem best er vitað tók aðeins einn félagsmaður þátt í skákmótum í ágústmánuði og hækkaði hann talsvert á kappskákstigum og hraðskákstigum.
Ádám Gulyás hækkaði um 21 kappskákstig eftir fínan árangur á móti í Ungverjalandi og hann hækkaði um 46 hraðskákstig eftir fínan árangur á hraðskákmóti á Akureyri.
Ádám Gulyás er því með 1764 kappskákstig og 1822 hraðskákstig þann 1. sept.

