Vigfús Ó. Vigfússon sigraði örugglegga á hraðkvöldi Hugins sem fram fór 27. nóvember sl. Vigfús lagði alla andstæðinga sína að velli og fékk 6v í jafn mörgum skákum . Annar varð Pétur Pálmi Harðarson með 4v og þriðji Magnús Magnússon með 3v.

Tölvan leitaði ekki langt yfir skammt í happdrættinu og upp kom talan tveir þannig að Pétur Pálmi var dreginn. Aðeins eru eftir miðar frá Saffran, þannig að ekki var hægt að velja eins og oftast í vetur og Vigfús og Pétur fengu sitt hvorn miðann fyrir máltíð á Saffran.

Lokastaðan á hraðkvöldinu:

  1. Vigfús Ó. Vigfússon, 6v/6
  2. Pétur Pálmi Harðarson, 4v
  3. Magnús Magnússon, 3v
  4. Sigurður Freyr Jónatansson, 2,5v
  5. Hörður Garðarsson, 2,5v
  6. Björgvin Kristbergsson, 2v
  7. Pétur Jóhannesson, 1v