Vignir Vatnar Stefánsson sigraði á hraðkvöldi Hugins sem fram fór 4. desember sl. Vignir Vatnar fékk 6,5v af sjö mögulegum og það var Páll Andrason sem náði jafnteflinu í fimmtu  umferð. Annar var Örn Leó Jóhannsson með 6v og þriðji var Páll Andrason með 5v.

Það voru tólf með að þessu sinni þanni að líkurnar í happdrættinu voru minni en síðast. Að þessu sinn leitaði tölvan niður á við og valdi Pétur Jóhannesson. Eins og síðast fékk sigurvegarinn og sá heppni sinn hvorn miðann fyrir máltíð á Saffran. Næsta skákkvöld verður fyrsta mánudag á nýju ári og þá verður úrvalið vonandi meira.

Lokastaðan á hraðkvöldinu:

1.  Vignir Vatnar Stefánsson, 6,5v/7

2.  Örn Leó Jóhannsson, 6v

3.  Páll Andrason, 5v

4.  Vigfús Ó. Vigfússon, 4,5v

5.  Gunnar Nikulásson, 4v

6.  Kristinn Jón Sævaldsson, 3v

7.  Kristján Halldórsson, 3v

8.  Hjálmar Siurvaldason, 3v

9.  Sigurður Freyr Jónatansson, 3v

10. Hörður Jónasson, 3v

11. Björgvin Kristbergsson, 2v

12. Pétur Jóhannesson, 1v

Lokastaðan í chess-results: